Davíð Egilsson nýr svæðislæknir sóttvarna í Vestmanneyjum

Davíð Egilsson yfirlæknir á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum er nýr svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram á vefsíðu HSU.

Davíð lærði læknisfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2010 og fékk almennt lækningaleyfi hér á landi 2011.  Hann starfaði í kjölfarið á Slysa- og bráðadeild LSH en hélt síðan til Svíþjóðar í sérfræðinám sem hann kláraði árið 2013. Eftir það stundað hann nám í heimilislækningum við heilsugæsluna í Åhus og sjúkrahúsinu í Kristianstad í Svíþjóð og fékk þar sérfræðileyfi í apríl 2018. Eftir það hélt hann heim til Íslands og er nú eins og fyrr segir yfirlæknir á heilsugæslustöð HSU í Vestmannaeyjum.

Á Suðurlandi eru nú fjórir svæðislæknar sóttvarna sem heyra undir Elínu Freyju Hauksdóttur umdæmislækni sóttvarna á Suðurlandi og yfirlækni á Höfn.  Þeir eru auk Davíðs, Björn G. S. Björnsson yfirlæknir í Rangárþingi, Sigurjón Kristinsson yfirlæknir í Laugarási og Ómar Ragnarsson yfirlæknir í Hveragerði og Þorlákshöfn.

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.