Nýr vefur Vestmannaeyjabæjar kominn í loftið

Í dag tók Vestmannaeyjabær nýjan vef í gagnið. „Gamli vefurinn var komin á sitt 10. ár og löngu tímabært að aðlaga vefinn að breyttum þörfum nútímans,” segir í tilkynningu frá Írisi Róbertsdóttir, bæjarstjóra

Það var Hugsmiðjan sem gerði vefinn í samvinnu við Vestmannaeyjabæ að undangenginni verðkönnun. „Lagt var upp með að nýi vefurinn félli að kröfum nútímans um hönnun, útlit og framsetningu. Uppbygging og flæði um síðuna yrði þægilegt fyrir notandann og lykilupplýsingar auðfundnar. Rík áhersla er lögð á skalanleika vefsins í hinum ólíku tölvum og tækjum, svo sem snjalltækjum, símum og spjöldum auk venjulegra heimilistölva.”

Einnig er boðið upp á pólska og enska útgáfu af vefnum.  “Með ráðningu fjölmenningarfulltrúi á síðasta ári opnaðist möguleiki á að miðla hluta upplýsinga á vefnum einnig á pólsku og ensku. Með því tekst sveitarfélaginu betur að ná til þeirra hópa íbúa sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.”

“Það er von mín að með nýjum vef Vestmannaeyjabæjar verði aðgengi að upplýsingum um sveitarfélagið betra og auðveldara fyrir íbúa, fyrirtæki og starfsmenn sveitarfélagsins að nálgast upplýsingar,” segir Íris í tilkynningunni.

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan.

_______________________

Nýr vefur Vestmannaeyjabæjar
Í dag tók Vestmannaeyjabær í notkun nýjan vef. Gamli vefurinn var komin á sitt 10. ár og löngu tímabært að aðlaga vefinn að breyttum þörfum nútímans.

Að undangenginni verðkönnun gekk Vestmannaeyjabær til samstarfs við Hugsmiðjuna um gerð nýs vefjar. Lagt var upp með að nýi vefurinn félli að kröfum nútímans um hönnun, útlit og framsetningu. Uppbygging og flæði um síðuna yrði þægilegt fyrir notandann og lykilupplýsingar auðfundnar. Rík áhersla er lögð á skalanleika vefsins í hinum ólíku tölvum og tækjum, svo sem snjalltækjum, símum og spjöldum auk venjulegra heimilistölva.

Með ráðningu fjölmenningarfulltrúi á síðasta ári opnaðist möguleiki á að miðla hluta upplýsinga á vefnum einnig á pólsku og ensku. Með því tekst sveitarfélaginu betur að ná til þeirra hópa íbúa sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.

Sjálfvirkt flæði úr fundargátt sveitarfélagsins hefur verið útfært þannig að nú birtast fundargerðir nefnda og ráða sjálfkrafa á vefnum um leið og búið er að samþykkja fundargerðir. Minnisblöð og önnur fylgigögn sem fylgja einstökum dagskrárliðum birtast einnig í fundargerðunum.

Það er von mín að með nýjum vef Vestmannaeyjabæjar verði aðgengi að upplýsingum um sveitarfélagið betra og auðveldara fyrir íbúa, fyrirtæki og starfsmenn sveitarfélagsins að nálgast upplýsingar.

Þar sem tæknin er okkur flestum dálítið óútreikningaleg er hugsanlegt að byrjunarörðugleikar komi upp fyrstu dagana. Vestmannaeyjabær mun standa vaktina, en fólk er jafnframt beðið um að sýna því skilning.

Allar ábendingar um vefinn eru vel þegnar.

Íris Róbertsdóttir,
bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Útsýnisskálinn opnaður – myndband
Stefnuleysi bæjarstjórnar
Hugum að staðsetningu Féló fyrir aukna þátttöku ungmenna í samfélaginu
Herjólfur stefnir á siglingar í Landeyjahöfn
Valskonur urðu Íslandsmeistarar í Eyjum eftir sigur á ÍBV
Sjónarhorn flakkarans vígt í hrauninu við Eldfell
Tafir á haffærniskírteini Herjólfs III
Fjör, gleði og glæsileg skemmtun á árshátíð VSV
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.