
Grunnskóli Vestmannaeyja var settur við hátíðlega athöfn í stóra sal Íþróttamiðstöðvarinnar að viðstöddu fjölmenni. Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Hamarsskóla, og Einar Gunnarsson, skólastjóri Barnaskólans buðu nemendur sem eru um 550, foreldra og starfsfólk velkomið til skólaársins 2026 til 2027.
Skólasetningin hófst á skólasöngnum undir stjórn Jarls og var þar haldið í góða hefð. Í máli skólastjóranna kom fram að þetta væri í þriðja sinn sem Grunnskóli Vestmannaeyja væri settur eftir að skólanum var skipt í tvær einingar, Hamarsskóla og Barnaskóla. Sögðu þau reynslu síðustu tveggja ára sýna að fyrirkomulagið hefði fest sig í sessi og lögðu áherslu á áframhaldandi öflugt samstarf skólanna.
Hugmyndafræði Kveikjum neistann verður áfram fyrirferðarmikil í skólastarfinu. Verkefnið hefur fest sig vel í sessi í Hamarsskóla og áherslur þess verið þróaðar áfram í Barnaskólanum. Þar verða 5. og 6. bekkir beinir þátttakendur í verkefninu í vetur en aðrir árgangar nýta einnig ýmsa þætti þess.
Sérstaklega var boðið velkomið það starfsfólk sem nú hefur störf við skólann og nemendur í 5. bekk sem eru að hefja nám í Barnaskólanum eftir veru sína í Hamarsskóla. Þá voru nemendur hvattir til að taka vel á móti nýjum samnemendum.
Anna Rós og Einar lögðu áherslu á að skólastarf snerist um meira en bóklegt nám. Hugarfar, hreyfing, samvinna, vinátta og félagsleg tengsl skiptu ekki síður máli. Nemendur voru hvattir til að vera óhræddir við að gera mistök, sýna seiglu og styðja hvert annað.
„Þið eruð hjartað í þessum skóla og ástæðan fyrir því að við erum hér allan ársins hring,“ sagði Einar og hvatti nemendur til að mæta nýju skólaári með opnum hug og forvitni.
Foreldrar voru jafnframt hvattir til virkrar þátttöku og góðs samstarfs við skólann, enda væri samvinna heimilis og skóla mikilvæg fyrir vellíðan og árangur barnanna.
Að lokum óskuðu skólastjórarnir þess að veturinn yrði ár lærdóms, vináttu, „meiri neista“ og vaxandi sjálfstrausts nemenda áður en skólaárið 2026–2027 var formlega sett.
