Nýtt tölublað Eyjafrétta komið út: Loðnan, kosningabaráttan og forsetaheimsókn

Nýjasta tölublað Eyjafrétta er komið út og þar kennir ýmissa grasa – allt frá loðnuvinnslu á fullu til spennandi sveitarstjórnarmála og hlýlegrar heimsóknar forsetahjónanna.

Loðnuvinnsla á fullu

Á forsíðunni er kastljósið á loðnuvertíðina sem hefur gengið vel. Vinnslan er í fullum gangi og undirbúningur fyrir hrognatöku framundan. Rætt er við forsvarsmenn Ísfélagsins og Vinnslustöðvarinnar um stöðuna og verkefnin framundan. Þá er forvitnilegt viðtal í blaðinu við Yukiko Ono, sem stýrir sölu og innkaupum á loðnuafurðum fyrir japanska stórfyrirtækið Maruha Nichiro. Hún kom til Eyja gagngert til að fylgjast með hráefninu og tryggja gæði loðnu sem fer á japanskan markað.

Kosningaveturinn hafinn

Kosningabaráttan í Vestmannaeyjum er farin af stað af krafti.

  • Miðflokkurinn býður fram í fyrsta sinn í bænum.

  • Eyjalistinn undirbýr nýjan lista.

  • Sjálfstæðisflokkurinn boðar prófkjör.

  • Óvissa ríkir um framboð Fyrir Heimaey.

Einnig má lesa viðtöl og greinar frá frambjóðendum, þar sem þeir fara yfir sínar áherslur og framtíðarsýn fyrir Eyjar.

„Aldrei týna hlýjunni“

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason heimsóttu Eyjar í janúar og nutu sín vel í stilltu og björtu veðri. Í blaðinu er ítarleg umfjöllun um heimsóknina, skólaheimsóknir, Þrettándagleðina og skilaboðin til Eyjamanna – að varðveita samstöðuna og hlýjuna.

Stærsta atvinnuverkefnið í Eyjum

Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, áskoranirnar og þá miklu vinnu sem liggur að baki. Þeir ræða jafnframt stöðu samfélagsins, ábyrgð stjórnvalda og mikilvægi þess að skapa fjölbreytt og sérhæfð störf sem styrkja framtíð Vestmannaeyja.

Eyjamaður mánaðarins

Örlygur Helgi Grímsson, kylfingur ársins hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja, er Eyjamaður mánaðarins. Hann ræðir um golfið, fjölskylduna og hvað velgengni þýðir fyrir hann.

Húsbyggjendur í Goðahrauni

Við kíktum í heimsókn til Þóru Guðnýjar og Svenna sem eru að leggja lokahönd á nýtt heimili í Goðahrauni. Hugmyndin kviknaði í göngutúr – og nú er draumahúsið að verða að veruleika.

Skoðanir og saga

Í blaðinu er einnig aðsend grein um húshitunarkostnað og spurninguna „Hver ber kostnaðinn?“ og í Gömlu myndinni er rifjaður upp mikill snjór í Eyjum árið 1968. Blaðið er stútfullt af mannlífi, umræðu og fréttum úr samfélaginu. Tryggðu þér eintak eða lestu nánar á hér á eyjafrettir.is.

Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Áskrifendur geta nálgast vefútgáfuna hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.

Nýjustu fréttir

Eru samgöngur að stoppa þingmenn okkar?
Nýtt tölublað Eyjafrétta komið út: Loðnan, kosningabaráttan og forsetaheimsókn
Kristín Klara í lokahóp u-17
Trausti Hjaltason gefur kost á sér í efsta sæti Sjálfstæðisflokksins
Vestmannaeyjabær leitar að dagforeldrum
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Öflug íslenskukennsla í febrúar
Gísli Stefáns – Tekur ekki þátt í prófkjöri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.