Óðinn Sæbjörnsson tekur við KFS

KFS í samstarfi við ÍBV hafa ráðið Óðinn Sæbjörnsson sem þjálfara KFS. KFS leikur í 3. deild í sumar. Óðinn er 46 ára með UEFA A þjálfaragráðu og þjálfaði síðast hjá ÍBV við góðan orðstír. Sem leikmaður lék hann upp yngri flokka ÍBV og spilaði svo í 2. og 3. deild með KFS og þekkir því vel til fótboltans í Eyjum.

“Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni enda KFS með virkilega skemmtilegt og efnilegt lið. Við munum halda áfram að styrkja samstarfið við ÍBV og markmiðið er að halda áfram að gera strákana betri og hafa gaman af því að spila fótbolta. Ég vil nota tækifærið og hvetja alla Eyjamenn til að mæta á leiki hjá okkur í sumar, ég lofa því að það verður alvöru Eyjaskemmtun.” 
Fyrsti leikur KFS í 3.deild er gegn ÍH laugardaginn 7.maí kl. 14:00 í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.