Í janúar ár hvert afhenda Eyjafréttir Fréttapýramídann þeim aðilum sem taldir eru hafa skarað fram úr á nýliðnu ári með framlagi sínu og starfi og gert Vestmannaeyjar að betra samfélagi. Einn þeirra sem hlaut Fréttapýramídann árið 2017 var Víglundur Þór Þorsteinsson, læknir og Eyjamaður, sem nú er látinn.
Víglundur fékk Fréttapýramídann fyrir að varðveita og færa sögu Vestmannaeyja á stafrænt form og miðla henni á heimaslod.is. Meðal þess efnis sem hann vann að má nefna Blik, Sögu Vestmannaeyja, Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum og ritverk Árna símritara, auk þess sem hann ritaði frá grunni um 3.000 æviskrár Eyjafólks.
„Við þetta hefur Víglundur unnið í sjálfboðavinnu frá árinu 2006. Við í Sagnheimum, byggðasafni, verðum áþreifanlega vör við þann mikla áhuga sem Heimaslóð vekur hjá þeim sem hafa áhuga á sögu Vestmannaeyja, en vefurinn eflist ár frá ári. Við í Sagnheimum, byggðasafni, þökkum Víglundi fyrir elju hans og óeigingjarnt og öflugt starf í þágu Vestmannaeyja. Þess má geta að Víglundur er sonur Þorsteins Víglundssonar, eins af stofnendum byggðasafnsins og ritstjóra Bliks, og má því með réttu segja: ‚Margt er líkt með skyldum,‘“ segir í Eyjafréttum 27. janúar 2017.
Víglundur hélt áfram þessu merka starfi um árabil og er framlag hans til varðveislu og skráningar sögu Vestmannaeyja einstakt á allan hátt.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.