Breki VE kom til Vestmannaeyja að morgni 21. október eftir rúmlega þriggja vikna leiðangur í haustralli Hafrannsóknastofnunar. Teknar voru 179 rannsóknastöðvar á grunnslóð hringinn í kringum landið. Magnús Ríkarðsson skipstjóri segir leiðangurinn hafa gengið mjög vel þótt ofsaveður hafi sett svip sinn á síðari hluta hans.
Þetta kemur fram í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar. Breki hélt frá Eyjum að kvöldi 29. september. Að sögn Klemens Sigurðssonar, útgerðarstjóra Vinnslustöðvarinnar, hófust rannsóknir vestan Vestmannaeyja og var þaðan haldið hringinn í kringum landið.
Breki sá um rannsóknir á grunnslóð en rannsóknaskipið Árni Friðriksson annaðist rannsóknir á djúpslóð. Í haustrallinu í heild eru teknar rúmlega 370 rannsóknastöðvar.
„Þetta gekk mjög vel. Veðrið var reyndar að trufla okkur,“ segir Magnús í frétt Vinnslustöðvarinnar.
Þegar Breki var við Langanes gekk yfir lægð sem fylgdi ofsaveður af norðvestri. Síðan gafst tveggja daga hlé áður en suðvestanstormur tók við. Veðrið gerði síðari hluta leiðangursins bæði erfiðari og tímafrekari.
Þar sem Breki sinnti grunnslóðinni var hægt að laga yfirferðina að veðrinu og halda sig nær landi þegar aðstæður kölluðu á. Það þýddi þó að fara þurfti lengri siglingaleiðir en ella.
„Það urðu 3.700 sjómílur í túrnum, eins og við hefðum siglt til Tenerife og til baka,“ segir Magnús.
Á hverri rannsóknastöð var togað þrjár sjómílur eftir fyrirfram ákveðinni línu. „Aflinn á hverri stöð er kláraður á meðan siglt er á þá næstu,“ útskýrir Magnús.
Fimm starfsmenn Hafrannsóknastofnunar voru með í leiðangrinum og sinntu umfangsmiklum mælingum á aflanum. Jafnframt var allt skráð í brúnni.
Á meðan á leiðangrinum stóð var landað fjórum sinnum: á Ísafirði, Dalvík, Eskifirði og loks í Vestmannaeyjum.
Að lokum kemur Magnús á framfæri þökkum til starfsmanna Hafrannsóknastofnunar sem komu að rannsóknunum fyrir frábært samstarf. Myndir úr rallinu má sjá hér.