�?happ við losun úr Bodö á laugardaginn hafði lítil áhrif
�?happ varð um borð í Bodö á laugardaginn þegar verið var að losa stóran og þungan sementsvagn úr ferjunni, en þá bognaði viðbót við akstursbrú ferjunnar, sem varð til þess að hvorki var hægt að losa skipið né lesta það. Gunnlaugur Grettisson framkvæmdastjóri Sæferða sagði að einu afleiðingarnar sem þetta hafði í för með sér var hálftíma seinkun.
�??Starfsmenn Skipalyftunnar og Magnús frá M.M. flutningum og krönum voru mjög fljótir á vettang til aðstoðar. Framlengingin sem sett hafði verið á akstursrampinn var skorin burt og hífð í land, skipið losað hratt og lestað aftur og farið af stað. Framlengingin var svo löguð og henni komið fyrir aftur. �?g var virkilega ánægður með hve þetta gekk allt vel fyrir sig og allir klárir í að hraða þessu eins og hægt var,�?? sagði Gulli.
Eyjafólk á að fá að koma af því að velja nafn
�?að var ekki annað hægt en að nýta tækifærið og spyrja framkvæmdastjórann um hið umdeilda nafn á nýrri ferju. �??Mér finnst að ef það á að skipta um nafn á Vestmannaeyjaferjunni eigi Eyjafólk að koma að því að velja nafnið. Núverandi nafn er líka ansi gott finnst mér persónulega og auðvitað landsþekkt á Íslandi af ýmsum ástæðum. Ekki er óalgengt að ferjur fái nöfn þeirra bæjar eða eyja sem þær sigla til eða frá sbr. BODO og R�?ST en VESTMANNAEY er frátekið fyrir annað glæsilegt skip,�?? sagði Gunnlaugur.

Nýjustu fréttir

Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.