Ölduhæð í tólf metra í Landeyjahöfn
Foráttubrim við Hamarinn – Mynd Stefán Geir.

„Ný lægð nálgast úr suðri og fer lægðarmiðja hennar norður yfir landið vestanvert í dag.   Óveðrið heldur áfram með rauðum viðvörunum sem gilda fyrir nær allt landið. Búist er við skörpum veðraskilum yfir vestasta hluta landsins fyrripart dags.

Austan megin við skilin heldur sunnan óveðrið áfram og mun geisa á stærstum hluta landsins, sunnan 25-30 m/s með snörpum og varasömum vindhviðum og talsverðri rigningu á köflum. Vestan þeirra verður mun hægari vindur, kalt og snjókoma, sérstaklega á Vestfjörðum og Breiðafirði og hluta Faxaflóa,“ segir á vef Veðurstofunnar, vedur.is.

Já, átökin eru mikil eins og þessi mynd Stefáns Geirs sem hann tók úti á Hamri í morgun sýnir. Hressilega hefur blásið á Stórhöfða, 10 mínútna meðalvindur komist í 40 m/s og hviður upp í 50 m/s. Öldumælir við Landeyjahöfn sló í tólf metra klukkan 09.39 í morgun og aftur í rúma tíu rétt fyrir kl. 12.00. Ölduspá gerir ráð fyrir lækkandi ölduhæð þegar líða tekur á daginn.

 

Nýjustu fréttir

Gamla myndin: Mikli snjórinn í Eyjum í mars 1968
Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.