Óli Gränz - Traustvekjandi staðfesting
Breiðablik var mikil bæjarprýði en handtökin voru mörg áður en framkvæmdum lauk.

„Óli Gränz“ er heiti endurminninga Carls Ólafs Gränz, iðnmeistara og gleðigjafa, frá Vestmannaeyjum. Hann fæddist í Eyjum 16. janúar 1941 og hefur lagt gjörva hönd á margt á lífsleiðinni. Var ungur til sjós og síðar farsæll iðnaðarmaður, rak bílaleigu og verslun, settist á Alþingi og allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, var bókaútgefandi á heimsvísu og mikilvirkur í félagsmálum. Óli segir frá æsku sinni og uppvexti, þátttöku í atvinnulífi og pólitík, einkamálum, prakkarastrikum og eldgosunum í Surtsey og Heimaey. Bókin er 315 bls. og prýdd fjölda mynda. Guðni Einarsson skráði. Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar.

„Einu sinni var ég á verkstæðinu mínu við Höfðaveg seint um kvöld að setja upp rafmagnstöfluna í Breiðablik. Mér óx ekkert í augum að setja töfluna upp. Ég aflaði mér upplýsinga um hvernig hún þyrfti að vera og teiknaði hana upp. Svo keypti ég það sem til þurfti og hófst handa.

Þá fór ég allt í einu að efast og að mikla fyrir mér hvað ég væri eiginlega búinn að koma mér út í! Það helltist yfir mig kvíði og mér fannst þetta vera alveg glórulaust rugl, ekkert nema grobb og vitleysa. Annars hefur verkkvíða yfirleitt alveg vantað í mig! Ég hef alltaf tekist á við verkefnin og aldrei sýnt nein veikleikamerki. Þetta var í eina skiptið sem ég varð kvíðinn og áhyggjufullur vegna Breiðabliks.

 

 

Breiðablik var mjög illa farið áður en Óli hófst handa við að koma því í stand.

 

Ég fór að ganga um gólf og biðja Drottin um að gefa mér tákn um að ég væri í hans hendi — að hann væri með mér í þessu. Ég gaf Drottni tíma til miðnættis að senda mér táknið. Það voru heil þrjú korter! Úti var svartamyrkur, slyddudrulla og sannkallað skítaveður. Ég hugsaði að það væri ekki hægt að biðja heimskulegri bænar en þessarar og ég væri heppinn að enginn maður heyrði til mín.

Rétt á eftir er bankað á verkstæðishurðina og inn kemur rennblautur Eyjamaður, þekktur bæjarbúi. Hann segir: „Óli, ég var að koma labbandi neðan úr bæ og þá kom svo sterkt til mín að mig langar að hjálpa þér með Breiðablik.“ Ég spurði hvað hann væri að hugsa?

„Mig langar að gefa þér allt nýtt á þakið,“ sagði maðurinn. Ég spurði hann hvort hann vissi að þakið væri 280 fermetrar og þetta myndi kosta um 300.000 krónur?

„Það var einmitt talan sem kom í huga minn,“ sagði maðurinn. Ég sagði bara amen og dýrð sé Guði. „Af hverju segir þú það?“ spurði maðurinn hissa. Ég sagði honum að ég hefði verið að biðja til Guðs og beðið hann um að senda mér tákn og þarna væri það komið! Guð hefði notað hann til að staðfesta að ég ætti að halda ótrauður áfram með Breiðablik. Maðurinn sagði að þetta væri þá fastmælum bundið en tók af mér loforð um að segja aldrei frá því að hann hefði gert þetta. Þetta stóð allt eins og stafur á bók og hleypti mér kappi í kinn. Svona komu bænasvörin hvert af öðru varðandi Breiðablik.

Ég byggði við Breiðablik 83 fermetra bílskúr og þá gat ég sett átta bíla inn í bílageymslur. Við áttum oftast 6-10 bíla, enda með bílaleigu um tíma, svo skúrarnir voru oftast fullir af bílum. Einnig gat ég gert við bíla þar inni. Bílastæði voru auk þess fyrir 15 bíla á lóðinni. Það skal tekið fram að rafmagnstaflan fór í úttekt og var samþykkt án athugasemda.

 

Þeir félagar, Óli og Guðni verða í góðum hópi sem segir frá nýjum bókum í Bókakaffinu á Selfossi, í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 20.00.

 

Nýjustu fréttir

Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.