Opið fyrir umsóknir um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina
Mynd: Jón Magnússon

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Lóu – nýsköpunarstyrki, en markmiðið með þeim er að efla nýsköpun á landsbyggðunum sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni. Styrkjunum er ætlað að styðja við frumkvöðla- og nýsköpunarverkefni sem og til uppbyggingar innviða fyrir verðmætasköpun og atvinnulíf, á forsendum svæðanna sjálfra.

Heildarfjárhæð Lóu árið 2022 er 100 milljónir króna, en hámarks styrkur til hvers verkefnis eru 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2022.

Umsóknum er skilað rafrænt í gegnum minarsidur.hvin.is 

Nýjustu fréttir

Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
Dýpið minnkaði um meter í síðustu brælu
Opinn borgarafundur í Eyjum
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.