Opin ráðstefna um Tyrkjaránið

Sunnudaginn 7. nóv. nk. kl. 12 er boðað til opinnar fjölþjóðlegrar ráðstefnu um Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum. Ráðstefnan er á vegum Sögusetursins 1627 og Uppbyggingarsjóðs SASS og verður í Safnahúsinu. Þar verða kynntar nýjar, fræðilegar útgáfur svo og nýjar skáldsögur byggðar á Tyrkjaráninu.

Ráðstefnan er hluti af starfi Sögusetursins sem gegnir því meginhlutverki að beita sér fyrir fræðslu um sögu Vestmannaeyja, stuðla að rannsóknum, efna til ráðstefna og viðburða og standa að útgáfu efnis sem tengist sögu Vestmannaeyja.
Sérstakir gestir ráðstefnunnar þessu sinni eru allir vel þekktir fyrir störf sín sem fræðimenn og rithöfundar. Gestirnir eru:

Karl Smári Hreinsson. Hann fjallar um útgáfur og not Reisubókar séra Ólafs Egilssonar.
Mats Royter kynnir skáldsögu sína um vestmannaeyska fjölskyldu sem handtekin var í Tyrkjaráninu og flutt til Alsír.
Joris van Os fjallar sérstaklega um þátt Hollendinga í Tyrkjaráninu.
Adam Nichlos fjallar sérstaklega um foringja innrásarhópanna, þá Murat Reis og Murate Flamenco.

Ráðstefnugestum gefst svo tækifæri til að bera fram fyrirspurnir til þeirra félaga.
Ragnar Óskarsson setur ráðstefnuna.
Kári Bjarnason stýrir ráðstefnunni.
Tríó Ásgeirs Ásgeirssonar mun svo flytja ráðstefnugestum íslensk þjóðlög í austrænum stíl og þá verður og boðið upp á veitingar í anda Norður- Afríku.
Sögusetrið 1627 hvetur alla til að mæta og taka þátt í dagskránni sem snertir svo sannarlega sögu okkar og menningu.

Sögusetrið 1627

Nýjustu fréttir

Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.