Opinn fundur SA í Vestmannaeyjum 21. september
Eyjólfur Árni Rafnsson, Halldór Benjamín Þorbergsson og Ásdís Kristjánsdóttir.

Á næsta ári verður samið um lífskjör Íslendinga í fjölda kjarasamninga. Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði og ræða svigrúm til launahækkana næstu árin á fjölda opinna funda hringinn í kringum landið næstu vikurnar.

Boðið verður til opins fundar í Vestmannaeyjum föstudaginn 21. september kl. 12-13.30 í Akóges-salnum.

Hægt er að skrá þátttöku á fundinn í Vestmannaeyjum hér

Tölum saman er yfirskrift fundanna og eru allir velkomnir. Yfirlit yfir fleiri fundi má nálgast hér en fundaröðinni lýkur í Reykjavík 1. nóvember.

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem starfa á grunni atvinnugreina. Yfir 2.000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði rúmlega 100 þúsund manns.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.