Öruggar áfram í bikarnum eftir 31 marks sigur

ÍBV átti ekki í miklum vandræðum með Víkingsstúlkur í 1. umferð Coca-cola bikars kvenna í Víkinni í kvöld.

ÍBV stúlkur sitja í þriðja sæti Olísdeildarinnar á meðan Víkingu er í níunda sæti 1. deildar.

Staðan í hálfleik var 7-22 og notaði Hrafnhildur Skúladóttir tækifærið og gaf ungum leikmönnum tækifæri á að spila. Fór svo að leiknum lyktaði með 32 marka sigri ÍBV 12-43.

ÍBV stúlkur eru því öruggar áfram í átta liða úrslit Coca-Cola bikarsins.

Markahæst í liði ÍBV var Harpa Valey Gylfadóttir með tíu mörk. Aðrir markaskorarar voru Ásta Björt Júlíusdóttir(6), Karólína Bæhrenz Lárudóttir(5), Elísa Björk Björnsdóttir(4), Bríet Ómarsdóttir(4), Arna Sif Pálsdóttir(4), Sunna Jónsdóttir (3), Greta Kaveliuskaite(2), Ester Óskarsdóttir(2), Kristrún Hlynsdóttir(1), Sara Sif Jónsdóttir(1) og Sandra Dís Sigurðardóttir(1).

Nýjustu fréttir

Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.