Öruggur sigur ÍBV gegn Stjörnunni
Úr leik ÍBV og Fram fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta gerði góða ferð í Garðabæinn í dag, þegar liðið vann sjö marka sigur gegn Stjörnunni í 13. umferð Olís deildar karla.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og var staðan 6:6 eftir 15 mínútur. Eyjamenn komust í 6:9 og voru með góða forystu í hálfleik, 12:16.

Eyjamenn héldu sama dampi í síðari hálfleik og voru með yfirhöndina. Þegar átta mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn sex mörk og nokkuð öruggur sigur Eyjamanna í augsýn. Lokatölur leiksins, 22:29.

Daníel Þór Ingason og Sveinn José Rivera voru markahæstir í leiknum með sex mörk. Petar Jokanovic varði tíu skot í marki ÍBV og Morgan Goði Garner sjö.

Mörk ÍBV: Daníel Þór Ingason 6 mörk, Sveinn José Rivera 6, Dagur Arnarsson 5, Andri Erlingsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Nökkvi Snær Óðinsson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Hinrik Hugi Heiðarsson 1, Ívar Bessi Viðarsson 1.

ÍBV tekur næst á móti FH, fimmtudaginn 11. desember kl. 19:30.

Nýjustu fréttir

Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Saman gerum við góðan bæ enn betri
Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar
Áttatíu eldri borgarar í sælunni á Tenerife
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.