Samgöngumál voru til umræðu á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni, þar sem meðal annars var farið yfir umsögn bæjarins um samgönguáætlun og stöðu flug- og siglingasamgangna við Eyjar.
Umsögn Vestmannaeyjabæjar um samgönguáætlun var send í umsagnargátt Alþingis þann 10. febrúar síðastliðinn. Bæjarstjóri fylgdi umsögninni eftir á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. febrúar þar sem ítrekaðar voru alvarlegar athugasemdir sveitarfélagsins við áætlunina.
Bæjarstjóri greindi frá því að óskað hafi verið eftir framlengingu á flugi til og frá Eyjum vegna aðstæðna í Landeyjahöfn. Erindið hefur verið sent til innviðaráðuneytisins og Vegagerðarinnar og er beðið eftir viðbrögðum.
Siglingar til Landeyjahafnar hafa verið stopular undanfarið og hefur ferjan Herjólfur því þurft að sigla í auknum mæli til Þorlákshafnar. Samkvæmt gildandi samningi eiga flugsamgöngur að leggjast af 28. febrúar næstkomandi. Bæjaryfirvöld telja hins vegar nauðsynlegt að halda úti flugi á meðan ekki er hægt að sigla fulla áætlun til Landeyjahafnar.
Í bókun bæjarráðs er lögð áhersla á að reglulegar siglingar til Þorlákshafnar feli í sér verulega skerðingu á samgöngum fyrir íbúa og fyrirtæki í Eyjum.
Einnig var tekið fyrir erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir fulltrúa í vinnuhóp um breytingar og uppbyggingu á aðstöðu Herjólfs í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að tilnefna framkvæmdastjóra Herjólfs og hafnarstjóra í vinnuhópinn.