Óska eftir tilnefningum til samfélags- og hvatningarverðlauna
DSC 2346
Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til samfélags- og hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi. Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem SASS mun veita formlega á ársþingi sínu í október 2024.

Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi, en mikil gróska hefur verið á þeim vettvangi undafarin ár.

Verðlaunin má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun, söfnum, hópi og/eða verkefni. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning á sviði menningar en menning er víða hornsteinn hvers samfélags og skiptir íbúa og gesti á Suðurlandi miklu máli.

Í rökstuðningi tilnefningarinnar skal hafa eitthvað af eftirfarandi atriðum til hliðsjónar:

  • Hefur tilnefndur gefið jákvæða mynd af Suðurlandi og/eða ákvæðnu svæði á Suðurlandi?
  • Hefur tilnefndur stuðlað að þátttöku íbúa og/eða gesta á menningarviðburðum á Suðurlandi?
  • Hefur tilnefndur vakið sérstaka athygli á menningararfi Sunnlendinga?
  • Hefur tilnefndur aukið samstöðu og virkni í tengslum við menningu meðal íbúa?
  • Hefur tilnefndur skapað nýtt menningartengt verkefni sem vakið hefur eftirtekt?
  • Hefur tilnefndur með einhverjum hætti stuðlað að aukinni menningu hjá börnum og ungmennum?

Veitt verður viðurkenning sem og peningaverðlaun sem nýta á til áframhaldandi menningarstarfs á Suðurlandi.

Tilnefningar skal senda á netfangið menningarverdlaun@sass.is eigi síðar en  mánudaginn 14. október nk. segir í tilkynningu frá samtökunum.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt
Samþykktu rekstrarviðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands
Skoða byggingu sjúkrasundlaugar
Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.