Óskar Pétur í heimsókn á fréttastofu Sýnar
Kolbeinn Tumi, Óskar Pétur og Emil Sölvi.

„Ég átti inni boð hjá Kolbeini Tuma Daðasyni, fréttastjóra fréttastofu Sýnar að líta við hjá honum á Sýn. Ég og barnabarnið Emil Sölvi fórum á Sýn í gær og var mjög skemmtilegt að sjá fullt af útvarpsstöðvum og sjónvarpsstöðvum, allt á einum stað,“ segir Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta sem brá sér í kaupstaðarferð um helgina.

„Kristján Már Unnarsson, fréttamaðurinn margreyndi rabbaði við okkur og sagði mér að hann hefði komið til Eyja fyrir nokkrum árum og gert nokkur fréttaskot í leiðinni. – Þetta var á þeim tíma þegar Eyjafréttir afhentu Fréttapýramídann og þeir voru svo ánægðir með fréttirnar mínar að þeir afhentu mér Fréttapýramída,“ hafði Óskar Pétur eftir Kristjáni Má sem var einn fyrirlesara á 50 ára afmælisráðstefnu Eyjafrétta á síðasta ári um stöðu héraðsfréttamiðla.

„Þó Kristján Már sé einu eða tveimur árum yngri en ég var hann samt eins og ellilífeyrisþegi miðað við allt unga fólkið sem vinnur hjá fréttastofu Sýnar,“ segir Óskar sem mætti með myndavélina.

 

Kristján Már, Óskar Pétur og Emil Sölvi.

 

Fréttasetið hjá Sýn.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.