Ótrúlega fjölbreyttur afli
Vestmannaey Framan 2
Vestmannaey VE við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Systurskipin Vestmannaey VE og Bergur VE, hafa að undanförnu lagt áherslu á að veiða annað en þorsk. Bergur landaði fullfermi í Eyjum sl. mánudag og Vestmannaey einnig fullfermi í gær.

Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Jón Valgeirsson á Bergi var ánægður með túrinn. „Aflinn hjá okkur var mest ufsi og karfi. Við vorum að veiðum í Reynisdýpinu út af Hjörleifshöfðanum og þarna var bara ágætis nudd. Við vorum að veiðum í tvo og hálfan sólarhring þannig að við höfum engin efni á að kvarta neitt. Veðrið var allt í lagi mest allan tímann en það var austan bræla í hálfan sólarhring. Haldið verður til veiða strax að löndun lokinni og þá kíkjum við líklega á Pétursey og Vík,” sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að túrinn hjá þeim hefði verið í lengri kantinum. „Við vorum að veiðum í fimm og hálfan sólarhring og það var víða farið. Við byrjuðum á Broadway vestan við Eyjar en þar var ekkert, síðan var grunnslóðin keyrð, tekin tvö hol á Síðugrunni og síðan prófað á Höfðanum. Þar var lítið að hafa. Síðan var farið í Breiðamerkurdýpið og þar var einnig lítið. Haldið var í Sláturhúsið og á Skerbleyðuna og þar var þetta áfram smásarg. Leiðin lá aftur á Höfðann og þar gátum við fyllt. Staðreyndin er sú að fiskur er ekki genginn á hefðbundnar vertíðarslóðir og það er til dæmis afar lítið að hafa við Eyjar. Það virðist vera ætisleysi á miðunum. Við sáum enga loðnu í túrnum nema austast. Aflinn hjá okkur í túrnum var ótrúlega fjölbreyttur. Við erum nánast með alla fiskabókina í lestinni, ég held að tegundirnar séu 18 talsins. Það verður farið út strax að löndun lokinni. Það þýðir ekkert annað en að halda sér við efnið. Nú er Vestmannaey að fara í níunda túr ársins en í fyrra fórum við níu túra bara í febrúar. Það er lengra að sækja en í fyrra og veður hefur verið óhagstæðara. Það gengur á ýmsu í þessu,” sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Gabríel Ari gerir tveggja ára samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.