Eyjamenn létu Íslandsmeistara Hauka líta vægast sagt illa út í toppslag Olís-deildarinnar rétt í þessu. Leikurinn endaði með ótrúlegum 17 marka sigri heimamanna sem léku á alls oddi, lokastaða 40:23. Liðsmenn ÍBV settu tóninn strax í fyrri hálfleik en munurinn á liðunum var átta mörk strax í hálfleik. Liðin eru nú jöfn að stigum í deildinni en Eyjamenn eru á toppnum vegna innbyrðis viðureigna.
Theodór Sigurbjörnsson fór á kostum og skoraði 13 mörk í liði ÍBV. Stephen Nielsen sýndi enn og aftur mátt sinn og megin en hann var búinn að verja 25 skot þegar Kolbeinn Arnarsson leysti hann af hólmi undir lok leiks.
Hér má sjá svipmyndir úr leiknum.