Ótrúlegur árangur

Það verður að teljast með ólíkindum að ÍBV-íþróttafélag sé á leið í úrslit með bæði karla- og kvennalið í handbolta. Konurnar tryggðu sér sæti í úrslitunum í gær þegar þær sigruðu Hauka. Í kvöld var komið að körlunum sem sigruðu FH þriðja leik undanúrslitanna 31:29. Báðir hörkuleikir þar sem úrslitin réðust í framlengingu.

„Það er alltaf frá­bært þegar svona flott ein­vígi eru spiluð. Þetta er samt ekk­ert nýtt, ég var í fjög­urra liða úr­slit­um hérna og við slóg­um aðsókn­ar­met 1991 sem var frá­bært þó við höf­um tapað, það var eft­ir­minni­leg­ur leik­ur. Þetta er eins með hand­bolt­ann og körfu­bolt­ann, þetta er mik­il skemmt­un og virki­lega gam­an að fólk sé að taka þátt í þessu með okk­ur,“ sagði Erlingur Richardsson í viðtali við mbl.is í kvöld. Já, bæði karlar og konur hafa fólkið með sér og stuðningurinn mun fleyta þeim langt þegar í úrslitin er komið.

Kári Kristján, sem sjaldan hefur verið öflugri var markahæstur Eyjamanna með 9 mörk, Rúnar 5, Dagur 5, Gabríel 5, Arnór 3 og Janus 2.

Petar varði 8 skot og Pavel 6.

Hvítu riddararnir hafa sett svip sinn á leiki ÍBV svo um munar.

Mynd Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.