Fab Lab, Biggi Nielsen og Vestmannaeyjabær stóðu fyrir sérstökum tónleikum í sundlauginni í gærkvöldi í tilefni Safnahelgar. Á tónleikunum voru hvalahljóð úr rannsóknum Háskóla Íslands við Vestmannaeyjar fléttuð saman við lifandi tónlist og myndefni úr náttúru og sögu Eyjanna.
Biggi Nielsen leiddi tónlistarflutninginn og meðal þeirra sem komu fram var S!ll!, sem hefur vakið athygli sem efnilegur tónlistarmaður. Hann flutti meðal annars gamla Eyjalagið Gamla Jón í nýjum búningi.