Páley : Sömu regl­ur gildi um stungusár og nauðgun
Páley Borgþórsdóttir lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyj­um mun flytja er­indi í dag und­ir yf­ir­skrift­inni: �??Lög­gæsla í þágu þolenda�?? á ráðstefn­unni �?ögn­in, skömm­in og kerfið sem fer fram í Há­skól­an­um í Reykja­vík í dag. Á ráðstefn­unni verður fjallað um nauðgun og er hún hald­in á veg­um laga­deild­ar og sál­fræðisviðs Há­skól­ans í Reykja­vík í sam­starfi við Rann­sóknamiðstöð gegn of­beldi við HA, lög­reglu­stjór­ann í Vest­manna­eyj­um, lög­reglu­stjór­ann á höfuðborg­ar­svæðinu og Aflið – Sam­tök gegn kyn­ferðis- og heim­il­isof­beldi.
�?essi brot eru það alvarleg að sömu reglur ættu að gilda
�??Mér finnst þessi brot vera það al­var­leg að um þau eigi að gilda sömu regl­ur og um al­var­lega glæpi. Ef mann­eskja með stungusár kem­ur inn á spít­ala er það um­svifa­laust til­kynnt til lög­reglu, en ekki nauðgun. Hver er mun­ur­inn?�?? spyr Páley.
Hún seg­ir það áhyggju­efni hve lágt hlut­fall þeirra kyn­ferðis­brota­mála sem koma inn á neyðar­mót­töku eru til­kynnt til lög­reglu. �??�?etta er rosa­lega lágt. �?að er áhyggju­efni og hef­ur verið það lengi. �?g hef verið að velta því upp hvort það eigi ekki bara alltaf að til­kynna. Væri það ekki eðli­legt?�?? spyr hún og viður­kenn­ir að hana langi að hrista aðeins upp í kerf­inu eins og það er í dag.
Hægt er að lesa meira um málið á mbl.is

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.