Hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að skella sér til Eyja með sýninguna sína “Pétur Jóhann óheflaður” í kvöld, föstudaginn 19. júní.
�?að er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni og prýðisgóði piltur er með uppistand öllum opið og hvað þá í Eyjum. �?ví er um að gera að nýta þetta einstaka tækifæri til að sjá Pétur Jóhann live segir í auglýsingu frá Háaloftinu.
Pétur er eins og alþjóð veit gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Og þar að auki hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.
Sýningin P�?TUR J�?HANN �?HEFLAÐUR er 2 klst uppistandssýning samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um Ísland með sýninguna og fyllt hvert húsið á fætur öðru.
16 ára aldurstakmark er á sýninguna.
Húsið opnar kl 21:00. Skynsamlegt er að mæta snemma til að ná góðum sætum.