Piltur um tvítugt var skorinn illa á hálsi, höndum og eftir hluta líkamans í heimahúsi í Þorlákshöfn í fyrrinótt.
Að sögn lögreglu þurfti tugi spora til að loka sárum hans en hann hefur nú verið útskrifaður af sjúkrahúsi.
Fimm Pólverjar voru í haldi lögreglunnar á Selfossi vegna málsins; bæði karlar og konur, öll um tvítugt. Ekki er vitað hvað var notað til að skera piltinn né hvað fólkinu gekk til en yfirheyrslur standa yfir