Pítsa á Bárustíg og Gott í Reykjavík
SAMSUNG CSC
SAMSUNG CSC
Gott hjónin Berglind Sigmarsdóttir og Sigurður Gíslason er fólk sem slær ekki slöku við og er alltaf með einhver járn í eldinum. Eftir gríðalega góðar móttökur á veitingastaðnum sínum Gott í Vestmannaeyjum síðustu ár er næst á dagskrá að opna Gott í Reykjavík. En það er ekki það eina því fyrir sumarið munu þau hjónin opna Pítsugerðina við Bárustíg.
Blaðamaður hitti þau hjónin síðast í September og á aðeins örfáum mánuðum er mikið búið að ske. Í síðustu viku kom tilkynning um að hjónin væru að fara opna Gott í miðbæ Reykjavíkur í uppgerðu húsi við Hafnarstræti. Gott Reykjavík mun opna í mars og er því undirbúningur á fullu. �??Eins og staðan er í dag erum við á fullu að undirbúa opnun á Gott í Reykjavík og er Siggi þar núna í undirbúningsvinnu, enda margt sem fylgir því að opna veitingastað,�?? sagði Berglind. Hún vinnur að undirbúningi heima í Vestmannaeyjum, ásamt því að halda utan um GOTT í Eyjum. Undirbúningurinn er samt ekki hefbundin að þessu sinni þar sem hugmyndin að staðnum, maturinn og markmiðin hafa þegar verið þróuð á Gott í Vestmannaeyjum, �??við munum ekki hætta að hlúa að Gott hér, því Gott í Vestmannaeyjum er móðirin í þessu öllu saman og hin tvö fyrirtækin eru börnin sem eru á brjósti, �?? sagði Berglind. Börnin tvö eru þá Gott í Reykjavík og nýr veitingastaður þeirra hjóna, Pítsugerðin.
Viðtal birtist í nýjasta tölublaðið Eyjafrétta. Hægt er að lesa vefútgáfuna hérna.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.