Prentsmiðjan Eyrún, Langa og Eyjabakarí taka þátt í fyrirmyndadeginum.
Vinnumálastofnun stendur fyrir Fyrirmyndardeginum í þriðja sinn á Suðurlandi á morgun, föstudaginn 24. nóvember.
Upphaflega hugmyndin um þennan sérstaka dag er að írskri fyrirmynd. �?ar hafa samtök Atvinnu með stuðningi innleitt Job Shadow dag með góðum árangri.
Markmið dagsins er að fyrirtæki og stofnanir bjóði atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn fyrirtækisins í einn dag. Með því fá gestastarfsmenn innsýn í fjölbreytt störf og starfsmenn fyrirtækja kynnast styrkleikum atvinnuleitenda með skerta starfsgetu.
Fyrirmyndardagurinn er mikilvægur liður í því að auka möguleika fólks á fjölbreyttri atvinnuþátttöku.
Fyrirtæki á Suðurlandi hafa verið mjög jákvæð um þátttöku og þessi fyrirtæki taka þátt í ár.
Prentsmiðjan Eyrún, Langa og Eyjabakarí, Vestamannaeyjum.
Sólheimar, Gróðurhúsið Sunna, Verslunin Vala, Mötuneytið Vigdísarhús, Grímsnes-og grafningshreppi.
Vinnumálastofnun Suðurlandi, Dagskráin, Vinnueftirlitið, Gullfosskaffi, Sveitarfélagið Árborg Kotið, Selfossi
Skinney �?inganes, �?orlákshöfn.

Nýjustu fréttir

VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.