Prýði - Vinalegt og afslappað andrúmsloft 
Jón Arnar Barðdal, ásamt Svövu Kristínu sem stendur vaktina í Prýði.

Jón Arnar Barðdal og fjölskylda hafa opnað nýtt einstaklega hlýlegt og fallegt kaffihús í Eyjum sem ber nafnið Prýði. Aðspurður hvernig hugmynd að kaffihúsinu hafi kviknað segir Jón að hann og fjölskyldan hafi eignast húsnæði sem var ekki í notkun og ákveðið að bestu notin fyrir húsnæðið hafi verið að skapa stað þar sem fólk gæti komið saman og notið samveru og veitinga. ,,Staðsetningin er þannig að okkur fannst að þarna væri skemmtilegt að auka enn á það skemmtilega líf og bæjarmenningu sem fyrir er í nágrenninu.“ Nafnið kemur frá ömmu og afa Jóns þeim Róberti og Svansí sem voru hér áður með Gallerí Prýði, og margt á staðnum kemur frá þeim.  

,,Við bjóðum upp á úrval af vínum, kaffidrykkjum og léttum veitingum, auk þess sem við leggjum áherslu á vinalegt og afslappað andrúmsloft þar sem gestir geta bæði komið sér fyrir í rólegheitum eða hist yfir drykk,“ bætir Jón við.   

Hann segir sumarið leggjast vel í þau og bætir við að það sé gaman að sjá bæinn lifna við. ,,Við finnum mikinn áhuga og forvitni bæði frá heimafólki og ferðamönnum og stefnum á að halda úti skemmtilegri dagskrá og njóta sumarsins með gestunum okkar.  

Jón segir viðtökurnar hafa verið framar vonum og segir fólk hafa verið jákvætt og forvitið að kíkja við. ,,Það hefur glatt okkur hvað margir eru spenntir fyrir svona stað í bænum og viljum við bara hvetja fólk til að líta við, prófa veitingarnar okkar og njóta stemningarinnar. Við erum alltaf opin fyrir ábendingum og hugmyndum frá gestum okkar segir hann að lokum.  

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.