Pysjueftirlit á fullu

Góður skriður er kominn í pysjuveiðarnar en í dag komu 198 fuglar til viktunar og er þá heildar talan komin í 963 stykki. Þetta eru aðeins færri pysjur en í gær en pysjurnar eru ennþá frekar smáar og er meðalþyngdin um 235 grömm. Starfsfólk pysjueftirlitsins á von á góðri veiði um helgina og eru enn fremur bjartsýn á það að pysjur eigi eftir að halda áfram að skila sér fram í miðjan september. Þau vilja einnig koma því á framfæri að vel er hægt að vigta pysjurnar heima og senda þeim upplýsingar um þyngd, dagsetningu og finnendur með tölvupósti á margret@setur.is. Auðvelt er að vigta fuglana með eldhúsvog og plastskál. Ef pysja er mikið léttari en 200 gr. eða mikið dúnuð er ráðlegt að koma með hana á safnið og fá frekari leiðbeiningar. Mikilvægt er að sleppa lundapysjum við fyrsta tækifæri og handleika fuglana sem minnst. Þá er vert að minna á að það er pláss fyrir góða sjálfboðaliða í pysjueftirlitinu og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband.

Nýjustu fréttir

Gabríel Ari gerir tveggja ára samning við ÍBV
Skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við ferðaþjónustuna
Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Stór og spennandi tímamót hjá yngstu nemendunum 
Lítil kraftur í veiðunum en skipin lönduðu fullfermi
Landsmót lúðrasveita haldið í Vestmannaeyjum
Hauststarfið að hefjast hjá Pílufélagi Vestmannaeyja
Fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ ólögmæt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.