Ráðherra heimsótt öll lögregluembætti
Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra í Vestmannaeyjum á föstudaginn. Ljósmynd/Stjórnarráðið.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, heimsótti á fimmtudaginn sl. lögreglustjórann á Vestfjörðum ásamt ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Á föstudag var ráðherra hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Þar með er lokið hringferð þar sem öll lögregluembætti á landinu voru sótt heim. Þetta segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Farið var í hringferðina til að kynna fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á lögreglunni. Ráðherra hyggst mæla fyrir frumvarpi um breytingarnar í haust og voru áformin lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í sumar.  Þau má lesa hér.  Stærsta breytingin verður sú að lögregluembættum verður fækkað úr níu í fjögur til fimm. Þannig eiga að verða til stærri og öflugri embætti um land allt.  Sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verður skoðuð sérstaklega.

Rík áhersla á samráð og samtal

Með hringferðinni gafst lögreglumönnum tækifæri til að ræða beint við ráðherra og koma sínum skoðunum eða áhyggjum á framfæri.

Mikil áhersla hefur verið lögð á náið samstarf og samtal við lögregluna í tengslum við breytingarnar. Sérstakur samráðshópur, skipaður starfsfólki ráðuneytisins, lögreglu og hagsmunasamtökum lögreglumanna, mun funda reglulega um nánari útfærslur á breytingunum.

Ráðherra meðvituð um ólík sjónarmið

Ráðherra hefur á fundum sínum með lögreglu verið afdráttarlaus um að skipulagsbreytingunum  fylgi hvorki fækkun starfsfólks né lögreglustöðva. Markmiðið sé þvert á móti að efla lögregluna og gera henni betur kleift að takast á við breyttan veruleika.

„Ég er sannfærð um að breytingarnar eigi fyrst og fremst eftir að styrkja löggæsluna í landinu. Engu að síður var algjört lykilatriði að hitta lögreglumenn á öllu landinu og eiga við þá opið og hreinskiptið samtal. Á þessum fundum okkar hafa komið fram ólík sjónarmið sem ég er mjög þakklát fyrir og þau verða höfð til hliðsjónar þegar breytingarnar verða útfærðar nánar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Nýjustu fréttir

Ráðherra heimsótt öll lögregluembætti
Orkumótið mikið ævintýri fyrir indversku strákana
Eyjamenn sækja toppliðið heim
Hlý orð Sigurjóns glöddu Sigurgeir, hans gamla kennara
Sigtryggur Daði áfram hjá ÍBV
Fyrsta pysja ársins fundin
Gleraugun nauðsynleg þegar sólmyrkvinn skellur á
Deiliskipulagi breytt vegna World Class við Hástein
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.