Ráðherra og vegamálastjóri mæta á íbúafund

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar hafa samþykkt að sitja íbúafund í Vestmannaeyjum þar sem samgöngumálin verða á dagskrá. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í gær þar sem rætt er við Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra. „Mér var falið að óska eftir því að innviðaráðherra, vegamálastjóri og aðrir fulltrúar Vegagerðarinnar myndu koma á íbúafund í Eyjum. Það hefur nú verið ákveðið og fundurinn verður 30. janúar í Höllinni,“ sagði Íris í samtali við Morgunblaðið. Hún sagði stöðuna í vetur hafa verið óásættanlega og kallar eftir áætlunum um samgöngur yfir vetrartímann sem hafi verið mjög erfiðar. „Þessar skertu samgöngur hafa mikil áhrif á allt samfélagið, bæði íbúa og atvinnurekstur, að fara úr sjö ferðum í tvær, og mun lengri sjóleið er eitthvað sem við getum illa sætt okkur við. Eðlilega er komin þreyta í okkur öll hér í Eyjum að þetta skuli ekki ganga betur en nú er og það þarf einfaldlega að bæta þessa höfn ef hún á að vera okkar heils árs samgöngumáti, sem hún er því miður ekki í dag. Við erum að kalla eftir svörum við því,“ sagði Íris við Morgunblaðið

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.