Ráðherra vill greiða fyrir orkuskiptum í sjávarútvegi

„Þessi áform eru lögð fram til að gera íslenskum sjávarútvegi kleift að vera áfram í fremstu röð á alþjóðavísu með sjálfbærri auðlindanýtingu, verðmætasköpun og kolefnishlutleysi. Verkefnið er krefjandi og það eru mörg skref eftir, en mikilvægast er að byrja,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Markmið stjórnvalda er að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Svandís leggur þessar tillögur fram í ljósi þessa markamiðs í tveimur þáttum.

Annarsvegar er um að ræða áform um frumvarp til laga sem heimilar smábátum eða fiskiskipum sem knúin eru rafmagni sem aðalaflgjafa að sækja um að landa 750 kg í þorskígildum talið af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð á strandveiðum á fiskveiðiárinu 2022/2023 í stað 650 kg. Þannig hafi eigendur smábáta eða minni fiskiskipa hvata til að fjárfesta í nýjum bátum og skipum eða breytingum þannig að þau gangi fyrir rafmagni með drifrafhlöðum í stað jarðefnaeldsneytis.

Hinsvegar er um að ræða áform um frumvarp sem varðar heimildir smærri togskipa til veiða innan 12 mílna beltis fiskveiðilandhelginnar, m.a. um hámarkslengd og vélarafl. Vélarafl er mælt í svonefndum aflvísi sem er margfeldi af hestöflum aðalvélar og þvermáli skrúfu viðkomandi skips. Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á þessum reglum til að greiða fyrir orkuskiptum og þá sérstaklega notkun tvíorkuskipa í fiskveiðum.

Nýjustu fréttir

Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.