Eftir að dómur er fallinn varðandi ráðningu í starf hafnarstjóra í Vestmannaeyjum stendur ekkert eftir af málinu annað en formgallar í málsmeðferð Framkvæmda- og hafnarráðs og að athafnir ráðsins hafi ekki verið rétt færðar til bókar í fundargerð. Af því er rétt og skylt að læra og verður gert. Vestmannaeyjabær var sýknaður að fullu í málinu og staðhæfingar um að í niðurstöðunni felist áfellisdómur yfir stjórnsýslu bæjarins eiga sér auðvitað enga stoð.
Dómurinn hafnar öllum meginásökunum stefnanda í málinu og í rökstuðningi fyrir því að færa miskabætur niður í 600 þúsund krónur, 1/5 af því sem krafist var, segir dómarinn m.a.: ‘’…ekki um að ræða neina meingerð gagnvart stefnanda nema þá sem felst í málsmeðmeðferð varastefnda…’’ (Framkvæmda- og hafnarráð). Ekki orð um það að haft hafi verið af honum starf sem hann ætti rétt á eða að hæfasti umsækjandinn hafi ekki veri ráðinn
Meirihluti bæjarstjórnar bókaði eftirfarandi í málinu:
‘’Bæjarstjórn Vestmannaeyja styður þá niðurstöðu bæjarráðs í þessu máli að una dómnum að sínu leyti, enda Vestmannaeyjabær sýknaður af öllum ásökunum stefnanda. Framkvæmda- og hafnarráð hefur sömuleiðis ákveðið að áfrýja ekki dómnum til Landsréttar. Engan áfellisdóm er að finna um efni málsins eða niðurstöðu en ljóst að ákveðin mistök voru gerð í ferlinu hvað varðar form og færslu fundargerða og undan því er ekki vikist. Má draga af því lærdóm til framtíðar.
Dómurinn snýr þannig að formgöllum en ekki efni málsins og meginásakanir stefnanda fá enga stoð í niðurstöðu dómsins. Þar segir m.a.: “Stefnandi byggir á að málsmeðferðin hafi ekki verið í samræmi við lög og að í ákvörðuninni, sem hann telur hafa verið ólögmæta, hafi falist ólögmæt meingerð gegn æru hans og persónu í skilningi b liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Með ákvörðuninni hafi verið vegið að starfsheiðri hans, orðspori, hæfni og reynslu. Hann vísar jafnframt til þess að hann hafi þurft að þola mikinn yfirgang í störfum sínum fyrir stefnda Vestmannaeyjahöfn, en þetta rekur hann meira og minna allt til bæjarstjórans Írisar Róbertsdóttur. Að mati dómsins hefur stefnanda ekki lánast nein sönnun þess að hann hafi almennt þurft að þola yfirgang og ósanngjarna framkomu af hálfu bæjarstjórans eða starfsmanna bæjarins.”
Og um þau sjónarmið sem stefnandi teflir fram fyrir miskabótakröfu upp á 3 milljónir kr. segir dómurinn: “Á þetta hefur hins vegar ekki verið fallist og ekki um að ræða neina meingerð gagnvart stefnanda nema þá sem felst í málsmeðferð varastefnda [Vestmannaeyjahafnar]…Að þessu virtu þykja miskabætur til hans hæfilega ákveðnar kr. 600.000.”
Engar efasemdir koma fram í dómnum um að hæfasti umsækjandinn hafi verið ráðinn í starf hafnarstjóra’’.
Helga Jóhanna Harðardóttir
Íris Róbertsdóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Njáll Ragnarsson
Páll Magnússon
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst