Innanríkisráðuneytið hefur staðfesti ákvörðun Siglingastofnunar um hertar reglur vegna svokallaðra Rib-báta. Nýjar reglur kveða á um að ekki er heimilt að sigla með farþega fyrir 1. júní og eftir 30. september, nema þeir séu klæddir í einangrandi flotbúninga. Auk þess er fjöldi farþega bundinn við 12 en bátarnir geta borið fleiri farþega. Í Vestmannaeyjum notast fyrirtækið Rib-safari við slíka báta og hefur ákvörðun Siglingastofnunar haft verulega slæm áhrif á rekstur fyrirtækisins.