Geir Jón �?órisson, varaþingmaður og fyrrum lögreglumaður, tók sæti á Alþingi í dag en hann leysir Ásmund Friðriksson af. Geir Jón flutti jómfrúarræðu sína á þingi í dag og gerði að umtalsefni samgöngur við Vestmannaeyjar, bæði Landeyjahöfn og fargjöld í �?orlákshöfn. �?? Á okkur hefur mjög brunnið hversu illa hefur gengið að halda uppi siglingum Herjólfs til Landeyjahafnar. �?egar hún var tekin í notkun 21. júlí 2010, var sagt að Landeyjahöfn yrði aðalhöfn Herjólfs. �?ví miður virðast litlar breytingar á sandburði inn í höfnina allt fram á þennan dag og því spurt getur það verið að höfnin sé ekki þannig úr garði gerð, að komist verði hjá því að fá ómældan sand inn í höfnina? Allavega nýtist ekki höfnin til siglinga Herjólfs allt of stóran part ársins. �?egar svo háttar, siglir Herjólfur í �?orlákshöfn en þá hækka fargjöld þrefalt miðað við siglingar í Landeyjahöfn. �?etta er algjörlega óásættanlegt. �?að er skýr krafa okkar Eyjamanna að nú þegar verði farið í framkvæmdir til að fullgera Landeyjahöfn og gera hana að heilsárshöfn,�?? sagði Geir Jón meðal annars í ræðu sinni sem má lesa í heild sinni hér að neðan.
Ræða Geirs Jóns í heild sinni:
Herra forseti. �?g vil gera að umtalsefni samgöngumál okkar Vestmannaeyinga. Á okkur hefur mjög brunnið hversu illa hefur gengið að halda uppi siglingum Herjólfs til Landeyjahafnar. �?egar hún var tekin í notkun 21. júlí 2010, var sagt að Landeyjahöfn yrði aðalhöfn Herjólfs. �?ví miður virðast litlar breytingar á sandburði inn í höfnina allt fram á þennan dag og því spurt getur það verið að höfnin sé ekki þannig úr garði gerð, að komist verði hjá því að fá ómældan sand inn í höfnina? Allavega nýtist ekki höfnin til siglinga Herjólfs allt of stóran part ársins. �?egar svo háttar, siglir Herjólfur í �?orlákshöfn en þá hækka fargjöld þrefalt miðað við siglingar í Landeyjahöfn. �?etta er algjörlega óásættanlegt. �?að er skýr krafa okkar Eyjamanna að nú þegar verði farið í framkvæmdir til að fullgera Landeyjahöfn og gera hana að heilsárshöfn. Með öllu er ólíðandi að farþegar með Herjólfi greiði viðbótargjald vegna þess að Landeyjahöfn virkar ekki. Hæstvirtur innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur sýnt samgöngumálum okkar Eyjamanna mikinn áhuga og hefur verið öll að vilja gerð til að bæta þar úr. Fyrir hennar tilstilli, siglir nú Víkingur útsýnisskip Viking Tours í Landeyjahöfn þegar veður leyfir og má flytja 63 farþega í hverri ferð. Í dag hefur skipið flutt rétt tæpa þúsund farþega á tólf dögum sem að skiptir stórum fyrir Vestmannaeyjar. �?á hefur hæstvirtur innanríkisráðherra boðað að farið verði í útboð á nýjum Herjólfi og er það vel. En ljóst má vera, að töluverðar lagfæringar þurfa að eiga sér stað í Landeyjahöfn. Hún þarf að virka allt árið, og ekki síður en �?orlákshöfn. Í þær framkvæmdir þarf að fara strax. �?að er ekki eftir neinu að byrja. Höfnin þarf að vera tilbúin fyrir nýtt skip.