Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja, ásamt bæjarráði, fór nýverið í skoðunarferð í móttökustöð Terra við Eldfellsveg. Í kjölfarið voru forsvarsmenn fyrirtækisins boðaðir á fund framkvæmda- og hafnarráðs þar sem farið var yfir stöðu mála. Arngrímur Sverrisson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Terra, og Daníel Edward Jónsson, rekstrarstjóri í Vestmannaeyjum, sátu fundinn og svöruðu fyrirspurnum ráðsmanna.
Meðal þess sem rætt var voru áhyggjur af umgengni á svæðinu, en kvartanir hafa borist um að flokkað sorp sé blandað saman og að ástand móttökustöðvarinnar sé óviðunandi. Þá var einnig farið yfir gjaldtöku vegna sorps og þær ábendingar sem bænum hafa borist frá íbúum.
Ráðið nýtti fundinn til að koma áhyggjum sínum á framfæri og kalla eftir úrbótum í umgengni og verklagi, með það að markmiði að bæta þjónustu og efla traust íbúa á fyrirkomulagi sorpmála í Vestmannaeyjum. Forsvarsmenn Terra veittu greinargóð svör og sögðust allir af vilja gerðir til að gera betur, segir í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.