Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Linda Sóley og Drífa Þöll í kappakstursbílnum góða.

Laugardaginn 30. maí fór Bókasafnið af stað með sinn árlega Sumarlestur. Þemað í ár er kappakstur og er í boði fyrir öll börn í Vestmannaeyjum. Hægt verður að skrá sig í allt sumar en við skráningu fá krakkarnir lestrarhest þar sem þau safna límmiðum fyrir hver 5 skipti sem þau lesa. Í lok sumars fá öll börn sem skrá sig glaðning frá Bókasafninu.

Búið er að skreyta safnið í takt við þemað og ber barnadeild safnsins þess glögg merki að kappakstur er málið í sumar. Það er greinilegt að mikil spenna er fyrir Sumarlestrinum í ár enda mætingin góð.

Boðið var upp á föndur, hægt var að leika sér í bílabrautum og kastleik en það sem mesta athygli vakti var kappakstursbíllinn sem smíðaður var af snillingnum Viktori Pétri Jónssyni, starfsmanni Safnahúss. Þessi bíll er listasmíð og mun eflaust vera vinsæll til að leika sér í í sumar.

Sumarlesturinn er orðinn rótgróinn í starfi safnsins og frá því að hann var endurvakinn fyrir 8 árum hefur fjölgað í hópi þátttakenda umtalsvert en í fyrra voru 118 börn sem voru virk í Sumarlestrinum.  Nú bætir Bókasafnið um betur og ætlar að bjóða upp á Sumarlestur, sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í. Það er þessi hefðbundni krakka Sumarlestur sem búið er að segja frá, Ungmenna Sumarlestur og svo Sumarlestur fyrir fullorðna. Hægt er að skrá sig í þá tvo síðarnefndu á netinu og hægt er að finna frekari upplýsingar og  hlekki á heimasíðu Safnahússins safnahus.vestmannaeyjar.is sem og á Facebook síðu Bókasafnsins.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.