Rafmagnslaust í Eyjum, Vík og Landeyjarsandi - uppfært
Stjórnstöð Landsnets. Ljósmynd/Landsnet

Rafmagnið fór af öllum Vestmannaeyjabæ laust fyrir klukkan 12 í dag. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Landsnets leysti Rimakotslína 1 út. „Rimakotslína 1 milli Hvolsvallar og Rimakots leysti út. Raf­magns­laust er í Vestmannaeyjum, Vík og Landeyjarsandi,” segir í tilkynningunni.

Uppfært kl. 12.18.

Fram kemur í tilkynningu Landsnets að orsök liggi ekki fyrir en verið er að skoða línuna. ,,Verið er að kanna orsök útleysingar og varaafls keyrsla er hafin í Vestmanneyjum og á Vík.”

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets segir í samtali við Eyjafréttir að verið sé að fara með línunni núna, að skoða hana og athuga hvort það séu skemmdir á henni. ,,Eins og staðan er núna vitum við ekki nákvæmlega hvað þetta mun taka langan tíma – en það er verið er að keyra  upp varaafl í Vestmanneyjum í þessum töluðum orðum.”

Uppfært kl. 12.40

FM-sendingar Rásar 1 og Rásar 2 liggja einnig niðri.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.