Ragnar �?skarsson - Burt með lítilsvirðinguna
Fyrir nokkrum árum komu fjölmargir Vestmannaeyingar saman á Stakkó til að mótmæla ófremdarástandi því sem ríkti í heilbrigðismálum okkar Eyjamanna. �?essi mótmæli áttu fyllilega rétt á sér enda var margt í megnasta ólestri og full ástæða til þess að mótmæla ástandinu og setja fram kröfur um umbætur. Í mótmælunum bar mest á hetjulegri framgöngu margra forystumanna Sjálfstæðisflokksins í bænum og í máli sínu hlífðu þeir ekki ríkisstjórninni sem þá sat við völd. Stór orð fuku enda málið grafalvarlegt.
En hvað hefur síðan gerst. �?g held að fullyrða megi að ekkert hafi gerst og enn búum við hér við allsendis ófullnægjandi heilbrigðisþjónustu. Hér þarf ekki að tíunda frekar þá ömurlegu stöðu sem heilbrigðismál okkar eru í, hún er okkur öllum kunn og er til háborinnar skammar.
Frá því að boðað var til mótmælanna á Stakkó hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið ráðandi í tveimur ríkisstjórnum og m.a. sérstaklega farið með heilbrigðismálun í landinu. �?eir sem hæst töluðu í mótmælunum hafa einhverra hluta vegna hvorki haft hátt síðan né mótmælt framkomu stjórnvalda nú eins kröftuglega sköruglega sem þá. �?eim ætti hins vegar að vera auðveldara nú en fyrr að ná eyrum ráðamanna þar sem flokkssystkini þeirra fara nú með völdin í landinu. Nú er lag.
�?g legg því til að það ágæta fólk sem fór með eldmóðinn að vopni á mótmælafundinn á Stakkó hér um árið sjái til þess að enn á ný verði haldinn fundur á Stakkó. �?ar mætti endurtaka ummælin sem þá voru höfð uppi og jafnvel gefa í ef eitthvað er. �?g er meira en til í að mæta eins og þá og ég er viss um að fleiri eru til. Slagorðið á fundinum gæti verið: �??Ríkisstjórn Íslands, burt með lítilsvirðingu ykkar gagnvart heilbrigðismálum Vestmannaeyinga.�??

Nýjustu fréttir

ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.