Í dag klukkan 17.30 opna Hulda Hákon og Jón Óskar sýningu í Einarsstofu sem þau kalla fjallið eina. Það er ekki í fyrsta skipti sem þau listahjón slá saman en verkin eru eins ólík og þau eru mörg. Og þær eru margar persónurnar og náttúrumyndirnar sem birtast í myndum þeirra. Þar koma m.a. við sögu Ringo Starr, David Bowie og Davíð Oddsson og eyjarnar Faxasker og Kolbeinsey lengst í norðri. Ekki stórar en skarta þó mannvirkjum.
Það má segja að þau færi vinnustofu sína í Einarsstofu því þar má sjá hvernig verkin verða til og er þetta einkum áberandi hjá Jóni. Hvað er fjallið eina? Þeirri spurningu svarar Hulda en Ringo og Bowie eru miklar hetjur í augum Jóns sem leitar líka í gamlar bíómyndir og plötur Bowie eru aldrei langt undan.
Jón sýnir hvernig verkin hans verða til og er eitt verkið bein tilvitnun í The Searcher, frægan vestra frá 1956. Annað vísar í plötu Bowies, Free Cloud. Líka í illskeittan Íra frá því fyrr á öldum sem skartaði sjö fingrum og hvorri hendi. Það kallar hann SVN FNGRS. Hulda er á öðrum slóðum og ögn jarðbundnari með sín persónulegu verk sem flestir þekkja.
Þýski Schäfer hundurinn þeirra, Heiða Berlín skipar stóran sess í listsköpun hjónanna Huldu og Jóns Óskars. Hulda hefur látið hana fljóta inn í myndir sínar í gegnum tíðina, en Jón Óskar fer aðra leið. Saman eiga þau verk í sýningarskáp. Heiða Berlí III, fór með listamanninum út á Eyju og þau fundu ösku úr Eyjafjallajökli. Saman sköpuðu þau skúlptúra. Heiða Berlín gróf og bjó til mótið. Jón Óskar steypti í gips. Í bakgrunn skúlptúra Heiðu Berlínar/Jóns Óskars eru verk unnin af honum einum, máluð á krossvið.
Þessi verk eru í sýningarskáp þar sem líka er Fjallið eina, lítið fjölfeldi sem Hulda hefur gert. Annað fjölfeldi er þarna sem ber titilinn Sofandi draugar ásamt móti af færeyskum fótboltamanni sem fylgist með áhorfendum.
Líka afsteypa úr gúmmíi sem Hulda gerði fyrir DV og voru menningarverðlaun blaðsins. Þau voru fjöldaframleidd og þrýstingurinn á mótin við steypuna var 80 tonn. Einnig Bronseldur, umhverfisverðlaun Reykjavíkurborgar þar sem 950 gráða heitt bronsið rann inní mótinu sem eru þarna.
Sigurður RE 4 og síðar VE 15 var lengi hugstæður Huldu. Í skápnum eru örsmáar akrílmyndir frá 1986, þar sem þetta happafley er viðfangsefnið ásamt Þorsteini húsverði í Hafnarhúsinu í Reykjavík.
Nú stendur yfir yfirlitssýning Huldu í Listasafni Íslands. Henni lýkur 29. september, Jón Óskar var með stóra sýningu á Listasafni Íslands árið 2015 og nú sýnir hann einnig í Eldheimum.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.