Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá embætti Sýslumannsins í Vestmannaeyjum við Heiðarveg. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Alls höfðu 341 greitt atkvæði utan kjörfundar í Vestmannaeyjum þegar Eyjafréttir leituðu upplýsinga hjá embætti sýslumanns í morgun.

Á kjörskrá í Vestmannaeyjum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna laugardaginn 29. ágúst eru 3.170 manns. Því hafa nú um 10,8% kjósenda í Eyjum þegar nýtt sér utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

Til samanburðar voru 3.538 á kjörskrá í bæjarstjórnarkosningunum í maí. Kjósendum fækkar því um 368 milli kosninga. Að sögn Ólafs Elíssonar, fulltrúa í yfirkjörstjórn í Vestmannaeyjum, liggur munurinn einkum í erlendum ríkisborgurum og Íslendingum búsettum erlendis sem höfðu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningunum en ekki í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nýjustu fréttir

ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjakonur sækja HK heim í dag
Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum
Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.