Rúnar Gauti Íslandsmeistari í snóker
Pálmi Einarsson, forseti Billiardsambands Íslands að afhenda Rúnari Gauta sigurverðlaunin.  Myndin er af Facebooksíðu Billiardsambandsins.

Rúnar Gauti Gunnarsson tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í snóker í flokki leikmanna 21 árs og yngri.  Rúnar Gauti vann Brynjar Hauksson 2:0 en mótið var haldið á Billiardbarnum í Reykjavík.  Auk bikars, fékk Rúnar Gauti glæsilegan Woods snókerkjuða í sigurverðlaun.  Þrátt fyrir mikinn snókeráhuga í Vestmannaeyjum er hægt að telja Íslandsmeistaratitlana á fingrum annarrar handar.  Þannig varð Eðvarð Matthíasson Íslandsmeistari 1993 en þeir Kristján Egilsson og Páll Pálmason urðu báðir Íslandsmeistarar öldunga fyrir nokkrum árum.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.