Rúnar Gauti raðar inn titlum
Rúnar Gauti Gunnarsson og Jón Óskar Þórhallsson mættust í úrslitaleik. Ljósmynd/aðsend.

Rúnar Gauti Gunnarsson stóð uppi sem sigurvegari í shoot-out móti í snóker sem Pílu- og Snókerfélag Vestmannaeyja hélt í samstarfi við Klett síðastliðið fimmtudagskvöld.  Rúnar Gauti tapaði ekki leik í mótinu og lagði Jón Óskar Þórhallsson í úrslitaleik.  Friðrik Már Sigurðsson endaði svo í þriðja sæti.

Shoot-out er hraðara afbrigði af hefðbundnum snókerleik þar sem hver leikur stendur yfir í aðeins 10 mínútur og er skotklukka þannig að hver leikmaður hefur takmarkaðan tíma til að stuða.  Mótið fór fram í aðstöðu Pílu- og Snókerfélagsins, sem gengur undir nafninu Bönkerinn og er í kjallara Hvítasunnukirkjunnar við Vestmannabraut.

Rúnar Gauti vann einmitt á dögunum Íslandsmótið í tvímenningi í snóker en þar spilaði hann með Þorra Jenssyni, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í snóker.

Ekki verður slegið slöku við hjá Pílu- og Snókerfélaginu því á morgun, laugardag verður haldið pílumót. 301 double in double mót og mun húsið opna kl 19:00 en keppni kl 19:30.  Spilað verður í riðlum og síðan útslætti en þátttökugjald er aðeins 1500 kr.  Nánari upplýsingar um mótið má finna á Facebook-síðunni Pílufélag Vestmannaeyja.

Shoot-out er hraðara afbrigði af hefðbundnum snókerleik þar sem hver leikur stendur yfir í aðeins 10 mínútur.

Nýjustu fréttir

Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi
Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.