Rússneskir bitcoin grafarar í Eyjum?
Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók í nótt tvo menn sem grunaðir eru um aðild að innbrotum og þjófnaði í gagnaverum í Reykjanesbæ, fréttablaðið greindi frá þessu í morgun. �?á kemur einni fram hjá þeim að, alls hafa ellefu verið handteknir í tengslum við málið en um er að ræða eitt stærsta þjófnaðarmál sögunnar enda þýfið talið nema rúmum 200 miljónum króna.
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er það rússneskur maður sem er tengiliður fyrir þá sem báðu um leyfi fyrir því að koma tveimur gámum fyrir á Eiðinu í Vestmannaeyjum. Samkvæmt heimildum var búið að koma fyrir öflugu gagnaveri í gámunum í þeim tilgangi að leita uppi bitcoin og eru getgátur uppi um að þarna sé kominn hluti af þeim 600 tölvum sem stolið var fyrr í vetur. Að gámnum liggja öflugir rafmagnskaplar.
Í kjölfar ránsins á tölvunum biðlaði lögreglan til orkusala um allt land um að vera á varðbergi yfir óeðlilegri notkun rafmagns. Sömu heimildir segja að lögreglan hafi fengið ábendingu frá HS-veitum sem leiddi til hantöku í Vestmannaeyjum í nótt.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.