Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu. Vestmannaey fór á sjó klukkan tíu á laugardagsmorgun og var komin til löndunar með fullfermi síðdegis á sunnudag frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Skipið fór út strax að löndun lokinni og mun væntanlega landa fullfermi á ný í fyrramálið. Bergey hélt einnig til veiða á laugardag og landaði fullfermi í gær. Gert er ráð fyrir að hún landi á ný á morgun. Heimasíðan fékk fregnir af því að Bergey hefði veitt einstaklega myndarlegan þorsk og sló að því tilefni á þráðinn til Jóns Valgeirssonar skipstjóra. „Jú, við fengum óvenju stóran þorsk undir lok síðasta túrs í Háfadýpinu. Þetta var þorskur sem var um 50 kg. að þyngd og um 1,80 að lengd. Hann var gamall og virðulegur og hefur árum saman sloppið við net og troll. Við vorum mest á Selvogsbankanum í túrnum en skruppum í Háfadýpið rétt undir lokin. Það hefur verið alveg fínasta veiði og túrarnir eru ekki langir þegar fiskast svona. Núna erum við að toga í Háfadýpinu í leiðindaveðri. Það er austan 18- 20 metrar og verður þannig í dag. Síðan held ég að sé betra í kortunum. Aflinn hér er blandaður en þetta er allt mjög góður fiskur,“ segir Jón.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.