Sælgætissala Kiwanis

Ágætu bæjarbúar nú um helgina mun vaskir sveinar úr Kiwanisklúbbnum Helgafell arka um bæinn og
selja hið árlega jólasælgæti Kiwanis. Viðtökur bæjarbúa hafa ávallt verið góðar og vonumst við eftir
áframhaldi á því. Salan á jólasælgætinu er stærsta fjáröflun okkar og hefur fjármagnað mörg góð
verk hér í bæjarfélaginu. En við höfum gefið rúm, göngugrind og annað slíkt á Hraunbúðir og HSU.
Við höfum gefið þrjá fíkniefnahunda til lögreglunnar og hitamyndavél á björgunarbátinn Þór svo
eitthvað sé nefnt. Verðið á öskjunni þetta árið er kr. 2000 og er því ráð að skella sér í hraðbanka til að
vera tilbúinn þegar þessir jólasveinar mæta. Einnig er hægt að nálgast sælgætisöskjur hjá
Kiwanisfélögum og í Tvistinum fram að jólum.

Myndin er frá árlegri afhendingu hjálma

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.