Fyrirhuguð lagning tveggja sæstrengja milli Landeyjasands og Vestmannaeyja er ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skal hún því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun telur að helstu umhverfisáhrif framkvæmdanna kunni að verða þar sem leggja á háspennustrengina nærri friðlýstum virkishleðslum á Skansinum í Vestmannaeyjum.