Í þessum mánuði eru 386 ár liðin frá því 242 Vestmannaeyingar voru fluttir nauðugir til Alsír og seldir í þrældóm. Af því tilefni býður Sögusetur 1627 til dagskrár í Sagnheimum, byggðasafni.
Dagskrá:
Gunnhildur Hrólfsdóttir sagnfræðingur flytur erindi um bók sína Ránið, sem er skáldsaga fyrir börn og byggist á Tyrkjaráninu 1627.