Sameiningu heilbrigðisstofnana frestað
Kristján �?ór Júlíusson, heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar til í haust. Meðal annars átti að sameina þrjár heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi í eina, á Hornafirði, á Selfossi og í Vestmannaeyjum. �?etta kom fram í máli hans á Alþingi í dag en á mbl.is segir að ráðherra segi að með því skapist meira svigrúm til samráðs vegna málsins.
�??Sameining heilbrigðisstofnana og samþætting yfirstjórnar er vandasamt verkefni. Góð samvinna velferðarráðuneytisins við sveitarstjórnir og starfsfólk viðkomandi stofnana er forsenda þess að vel takist til,�?? sagði ráðherra. Fyrir vikið hefði hann ákveðið að fresta setningu reglugerðar um sameiningu heilbrigðisstofnana. Sagðist hann gera ráð fyrir að sameiningin færi fram næsta haust.
Með því skapast meira svigrúm fyrir samráð á milli ráðuneytis annars vegar og sveitarstjórna og heilbrigðisstarfsfólks hins vegar um stefnuna í samþættingu heilbrigðisstofnana. Markmiðið með samþættingu heilbrigðisstofnana er að nýta fjármuni betur en gert er og styrkja rekstrar- og stjórnunareiningar,�?? sagði Kristján ennfremur.

Nýjustu fréttir

Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.