Samgöngur verði núna betri og þjóni þörfum Vestmannaeyinga

Nýr Herjólfur kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gær. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, voru við móttökuathöfnina þar sem nýr Herjólfur var afhentur Vestmannaeyingum.

Við athöfnina nefndi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, formlega nýjan Herjólf og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp þar sem hann afhenti Vestmannaeyingum hina nýju ferju. Í ræðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kom fram að með nýjum Herjólfi standi vonir til að samgöngur verði betri og þjóni þörfum Vestmannaeyinga. Þá eru orkuskipti eitt af áhersluatriðum ríkisstjórnarinnar. Því hefði ekkert annað komið til greina en að ný ferja gengi fyrir umhverfisvænni orku. Þá fluttu forstjóri Vegagerðarinnar, formaður bæjarráðs og fulltrúi Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ávörp og prestur Landakirkju blessaði skipið.

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.